Bloggfærslur mánaðarins, október 2007
10.10.2007 | 16:56
Frumsýningin gekk rosalega vel
Jæja þá er frumsýningin afstaðin og hún gekk alveg rosalega vel. Takk fyrir Hagaskóli . Það var nú dálítið skondið að sjá gamla skólann sinn aftur - hehe mig minnti nú t.d. að sviðið væri töluvert stærra. Fjarlægðin gerir fjöllin blá og sviðin stór . En já - við vorum í skýjunum og hlökkum til að takast á við áframhaldið.
Magga leikstjóri
8.10.2007 | 11:36
Forsýning á
Við vorum með forsýningu í Snælandsskóla á föstudaginn. Sýndum fyrir 10. og 8. bekk, ca 100 krakkar. Vá - viðbrögðin voru langt fram út því sem við höfðum þorað að vona. Það hefði mátt heyra saumnál detta!! Ég átti alveg eins von á því að þetta mikla drama færi fyrir brjóstið á mestu töffurunum - en nei ekki aldeilis. Allir bara rosa hrifnir. Við vorum alveg í skýjunum. Það var eitthvað um textarugl - enda ekki um eiginlega sýningu að ræða, aðeins æfing - en það gerði sýninguna bara skemmtilegri. Alltaf gaman að geta sagst hafa tekið eftir að leikarar rugluðust - gerir sýninguna bara eftirminnilegri heheh.
Magga leikstjóri
Menning og listir | Breytt 9.10.2007 kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2007 | 10:16
Ég á mig sjálf.
Frumsýning verður annað kvöld kl 21:00 á leikverkinu "Ég á mig sjálf" eftir Gunnar Gunnsteinsson í leikgerð og leikstjórn Margrétar Pétursdóttur.
Póstum inn myndum hér og meiri upplýsingum um verkið og hvar hægt er að nálgast sýningar hér fljótlega.
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar